E50 Skúringavél
Verð frá 578.000 kr m/vsk
Vinnubreidd bursta 50 cm.
Vinnubreidd sköfu 83 cm.
Hreinsigeta. 2.150 m2/klst.
Þyngd:76,5 - 150 kg.
E50 er handkeyrð skúringa- og þurrkuvél sem hentar vel fyrir ítarleg þrif á litlum og millistórum rýmum. Hún er einföld í notkun og sértaklega hugsuð sem hagkvæm lausn fyrir minni fyrirtæki.
Breidd skúringabursta á E50 er 50 cm og hámarkshraði 4,3 km/klst. Heildarafköst vélarinnar eru því allt að 2150 m2 á klukkustund.
Vélin er fáanleg með 24V rafhlöðukerfi eða með snúru. Þá er hægt að bæta við sjálfkeyrandi drifi (TRAC).
Stórir þvotta- og safntankar (40L/50L) hámarka skilvirkni og notagildi vélarinnar. Innbyggt hleðslutæki fylgir með rafhlöðudrifnum vélum.

Fáðu nánari upplýsingar eða tilboð í vöruna