E36 Skúringavél
Verð frá 347.200 kr m/vsk
Vinnubreidd bursta 36 cm
Vinnubreidd sköfu 45 cm
Hreinsigeta: 1.260 m2/klst
Þyngd: 41 - 63 kg
E36 er handkeyrð skúringa- og þurrkuvél sem hentar vel fyrir minni rými.
Breidd skúringabursta á E36 er 36 cm og hámarkshraði 3,7 km/klst. Heildarafköst vélarinnar eru því allt að 1332 m2 á klukkustund.
Vélin er fáanleg með 12V innsigluðu rafhlöðukerfi, sem nýtist í allt að 1 klst. og 40 mínútur, eða með snúru fyrir ótakmarkaðan notkunartíma. Vélin er nett og lipur og auðvelt að brjóta hana saman til geymslu.
Lítið mál er að skipta um skúringabursta án sérstakra verkfæra. Vatns- og þurrkuslanga er felld inn í stýrið til að einfalda viðhald á vélinni og fyrir auðvelt aðgengi að safntanki.
Af öryggisástæðum er kveikt og slökkt á E36 vélinni með handhægum lykli. Hægt er að stilla stýrið eftir hæð notenda og stjórntæki eru einföld og auðveld í notkun.
